Ást
Ást eða kærleikur er tilfinning djúpstæðrar samkenndar með annarri manneskju. Ást getur einnig verið platónsk, trúarlegs eðlis eða henni getur verið beint til dýra.
Í heimspeki og guðfræði er algengt að greina á milli þrenns konar ástar: holdleg ást (eros), vinátta eða áhugi (filia) og kærleikur eða guðleg ást (agape).
Smættarefnishyggja um ást segir að hún sé raunverulega ekkert annað en efnafræðilegt ferli sem verður til í líkamanum á manni (en líka mörgum dýrum). Ferlið fer aðallega fram í heilanum (ekki hjartanu, andsætt menningarlegu minni). Holdleg ást stýrist aðalega af hormónunum dópamíni, oxytosíni, ferómóni, vasopressíni, Noradrenalíni, serótóníni og estrógeni (hjá konum) og testosteróni (hjá körlum). Sumir eru á því að ást sé hugarástand en ekki tilfinning. Því tilfinning er eitthvað sem þú finnur í skamma stund er hugarástand er í lengri tíma.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- „The Anatomy of Love“ Geymt 14 október 2009 í Wayback Machine
- „Af hverju verðum við ástfangin?“. Vísindavefurinn.
- „Hvað er ást? Er hún mælanleg?“. Vísindavefurinn.
- „Kemur lauslæti í veg fyrir að maður finni sanna ást?“. Vísindavefurinn.