Fara í innihald

Timburmenn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
„Daginn eftir“, málverk eftir Edvard Munch 1894-1895.

Timburmenn eða þynnka er almenn vanlíðan eftir drykkju áfengra drykkja, oftast að loknum svefni, en þá er fólk oft með höfuðverk og er illa fyrir kallað, kastar jafnvel upp og mörg eru sérlega viðkvæm fyrir hávaða.[1][2][3] Hægt er að draga úr timburmönnum með því að drekka mikið af vatni áður en farið er að sofa.[4]

Orðið kom inn í íslensku úr dönsku undir lok 19. aldar í þessari merkingu, en áður merkti það trésmiður.[5] Talað er um að vera „grúttimbraður“, ef einhver er sérlega illa haldinn. Að vera „skelþunnur“ lýsir ástandi manns sem er farinn að „timbrast upp“. Að „hafa þórshamra í höfðinu“ er einnig lýsing á því þegar þynnkan veldur því að það er eins og hjartað slái í höfðinu.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Meg Whittle Whitcombe (14. maí 1972). „Timburmenn brotnir til mergjar“. Morgunblaðið. bls. 8.
  2. ↑ Jane E. Brody (30. janúar 1977). „Timburmenn eru þreyta og ofreynsla“. Morgunblaðið. bls. 22.
  3. ↑ „Þegar timburmennirnir mæta til vinnu“. Vísir. 17. janúar 1977. bls. 10.
  4. ↑ Þuríður Þorbjarnardóttir (6.5.2002). „Hvers vegna verður fólk timbrað og hvað hefur áhrif á timburmennina?“. Vísindavefurinn.
  5. ↑ Guðrún Kvaran (2.6.2006). „Hvaðan kemur orðið timburmenn?“. Vísindavefurinn.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.