Taubleyja
Útlit
Taubleyja er endurnýtanleg bleyja úr náttúrulegu og manngerðu efni. Slíkar bleyjur eru oft framleiddar úr bómull sem annað hvort er með náttúrulegum lit eða lagt í bleikiefni svo efnið verði hvítt. Önnur efni sem notuð eru í taubleyjur eru meðal annars ull, bambus og óbleiktur hampur. Stundum eru höfð sérstök rakadræg lög t.d. innlegg úr mikrófiber eða ytra lag úr PUL efni.
Wikibækur eru með efni sem tengist Taubleyjum.