Fara í innihald

Superman

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Clark Kent / Kal-El
Supermann
síða úr myndasögu af superman gegn nick o'teen frá 1980
„Superman vs. Nick O'Teen“ frá 1980
Útgáfu-upplýsingar
ÚtgefandiDC Comics
Kom fyrst fram íAction Comics 1.tbl (1938)
Kom fyrst fram
á Íslensku
Vísir 236. tbl (1945)[1]
Supermann 1.tbl (1985) Siglufjarðarprentsmiðja
Sköpuð af
  • Jerry Siegel (höfundur)
  • Joe Shuster (listamaður)
Sögutengdar Upplýsingar
Fullt nafn
  • Kal-El (gefið nafn)
  • Clark Kent (við ættleiðingu)
TegundKryptónbúi
UpprunastaðurPlánetan Krypton
Bandalög
Þekkt dulnefni
  • Supermann
  • Ofurmennið
  • Kjarnorkumaðurinn
Hæfileikar
  • Ofur- styrkur, hraði, liðleiki, viðbrögð, gáfur, skynfæri og langlíf. Skotheldur, rönkgen sjón, flug, kraftar hlaðnir af sólinni
  • ...og margt fleirra

Superman (einnig kallaður Ofurmennið eða Supermann á íslensku) er sögupersóna í teiknimyndablöðum eftir Jerry Siegel og Joe Shuster. Í sögunni er hann ofurmenni frá annarri plánetu sem heitir Krypton. Hann kemur til jarðarinnar eftir að heimaplánetan hans eyðileggst. Seinna voru gerðir þættir byggðir á teiknimyndablöðunum og fljótlega fylgdu 4 bíómyndir á eftir. Nýverið hafa verið sýndir þættir byggðir á æskuárum Superman sem heita í höfuðið á bænum sem hann ólst upp á, Smallville. Superman er með einstaka krafta, frægastur af þeim er hæfileikinn til að fljúga.

Íslendingar fengu fyrst að kynnast sögunni um Superman þegar blaðið Vísir byrjaði að prenta ensku myndasögustrimlana aftast í blaðinu sínu þann 17. nóvember 1945 með íslenskri útskýringu á framvindu sögunnar fyrir neðan strimilinn, og var Superman þá nefndur „Kjarnorkumaðurinn“.[2] En fyrsta sinn sem myndasagan sjálf var þýdd var þegar Siglufjarðarprentsmiðjan byrjaði að gefa út myndasögublaðið „Supermann“ árið 1985.

Söguþráður

Hann er fæddur á plánetunni Krypton en er sendur niður til Jarðar vegna þess að plánetan er að tortímast. Hann komst óhultur til Jarðar í smárri eldflaug sem faðir hans hafði smíðað. Þegar hann lenti voru indæl hjón að keyra framhjá þegar allt í einu kemur eldflaugin niður úr loftinu. Þau ólu hann upp og ber hann nafnið Clark Kent. Þegar hann eldist reynist svo að hann er öðruvísi en allir krakkarnir, t.d. helypur hraðar, hefur röntgensjón og margt fleira. Þegar kemur að því að hann flytur að heiman frá Smallville. Hann fær sér vinnu hjá Daily Planet og þar hittir hann Lois Lane. Eftir þetta vinnur hann að fréttum sem Clark Kent og Superman. Hann tekur sér mörg verkefni fyrir höndum og nær alltaf að bjarga deginum.

Superman á Íslensku

Siglufjarðarprentsmiðjan gaf fyrst út þýdd myndasögublöð um Superman (sem kallaðist þá Supermann á forsíðunni) árið 1985, en alls komu út 50 tölublöð á árunum 1985 - 1990 frá þeim.

Superman á skjánum

Það hafa verið gefnar út margar kvikmyndir og seríur um Superman, en frumraun í leikinni mynd var í kvikmyndaseríunni „Superman“ árið 1948 sem var 15 hluta sería sem var sýnd í sjónvarpinu og gefin út af Columbia Pictures.[3] Þegar hún var síðan gefin út á VHS myndbandsspólum var þeim skipt í bindi 1 (kaflar 1-7) og bindi 2 (kaflar 8-15). Fyrsta fulla kvikmyndin var hins vegar „Superman and the Mole Men“ sem kom út árið 1951 og var 58 mínútur á lengd en George Reeves lék Superman í þeirri mynd.

Tilvísanir

  1. ↑ „Kjarnorkumaðurinn“. Vísir. 17.10.1945. bls. 8.
  2. ↑ „Kjarnorkumaðurinn“. Vísir. 17.10.1945. bls. 8.
  3. ↑ „Superman“. International Movie DataBase (imDb). Sótt 9. ágúst 2026.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.