Sundlaug Stykkishólms
Útlit
Sundlaug Stykkishólms er sundlaug á Íslandi sem er staðsett í Íþróttamiðstöð Stykkishólmsbæjar, á Borgarbraut 4, 340 Stykkishólmi. Þar er 25 metra löng og 12 metra breið útisundlaug, og 57 metra löng vatnsrennibraut, en hún er önnur lengsta á Íslandi.[1] Einnig eru tveir heitir pottar en vatnið sem í þeim er er veitt úr borholu við Hofstaði, vaðlaug og 12 metra löng innilaug.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Umfjöllun um sundlaug Stykkishólms[óvirkur tengill] á vef Stykkishólmsbæjar
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Category:Sundlaug Stykkishólms.
- Umfjöllun um Sundlaug Stykkishólms[óvirkur tengill] á vef Stykkishólmsbæjar
- Sundlaug Stykkishólms Geymt 22 september 2008 í Wayback Machine á www.sundlaugum.is