Fara í innihald

Stóra-Holt

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Stóra-Holt (Fljótum))

Stóra-Holt er bær og áður kirkjustaður í Fljótum í Skagafirði. Þar var löngum stórbýli og var Holt ein af stærstu jörðum í Fljótum. Jörðin átti allt land frá Fljótaá til fjalls, milli Brúnastaða og Saurbæjar, þar á meðal allan Holtsdal. Fjallið fyrir ofan bæinn heitir Holtshyrna.

Í Holti var kirkja allt til ársins 1906 en þá fauk þáverandi kirkja í ofviðri og varð úr að byggja hana ekki upp aftur. Holt var aldrei prestssetur eftir siðaskipti, heldur þjónaði presturinn á Barði Stóra-Holtskirkju.

  • Jarða- og búendatal í Skagafjarðarsýslu 1781-1958. 4. hefti. Reykjavík 1959.
  • Hallgrímur Jónasson: Árbók Ferðafélags Íslands. Skagafjörður. Ferðafélag Íslands, Reykjavík 1946.
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.