Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson
Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson (f. 1987) er íslenskur aktívisti og listamaður. Hann hefur samið og flutt tónlist, meðal annars með hljómsveitinni Alræði öreiganna[1] og skrifað greinar og pistla fyrir Reykjavík Grapevine, Stundina og Nature.is
Listamaður
[breyta | breyta frumkóða]Snorri hefur haldið sýningar í Ekkisens húsinu á Bergstaðastræti 26B. Sýningarnar hans þar heita „Sakminjasafnið“[2], „HÁVAÐI II“ og „HÁVAÐI III“. Hann stóð fyrir halarófu verka ásamt Steinunni Gunnlaugsdóttur árið 2014 sem nefndist „Ef til vill sek“[3]. Meðal verka þar var myndbandsverkið „Maður bíður“, útgáfa ljóðabókar sem nefnist „Lengist í taumnum“[4] og stofnun Máf/vavinafélagsins[3].
Aktivisti
[breyta | breyta frumkóða]Snorri var talsmaður samtakanna Saving Iceland og hefur skrifað greinar gegn stóriðju[5][6], tekið þátt í mótmælum gegn Kárahnjúkavirkjun[7] og annarri stóriðju[8].
Snorri er einn af svokölluðum Nímenningum. Hann var handtekinn og ákærður ásamt átta öðrum fyrir árás á Alþingi þann 8. Desember 2008[9] þegar hann komst inn á palla Alþingis og hrópaði orðin:
„Þetta hús þjónar ekki tilgangi sínum, drullið ykkur út."[10]
Snorri var sýknaður ásamt hinum átta þann 16. febrúar 2011[11].
Snorri var handtekinn og ákærður fyrir að hrækja á lögreglubíl og lögreglumann 21. maí 2009 en var sýknaður í málinu. Snorri höfðaði skaðabótamál á hendur ríkinu fyrir þessar tvær handtökur og fór fram á að íslenska ríkið greiddi honum 5 milljónir króna í skaðabætur. Málið endaði með sátt og fékk Snorri 300 þúsund krónur í skaðabætur fyrir seinni handtökuna[12].
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ https://www.youtube.com/watch?v=B5vRSGdV_u4
- ↑ http://www.dv.is/menning/2014/10/23/gagnsleysi-sekt-og-gudleg-refsing/[óvirkur tengill]
- ↑ 3,0 3,1 https://starafugl.is/2014/ef-til-vill-sek-20-sept-til-3-okt/
- ↑ https://starafugl.is/2014/lengist-i-taumnum-eftir-snorra-pal-jonsson-ulfhildarson/
- ↑ http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=286857&pageId=4195907&lang=is&q=Snorri%20P%E1ll%20J%F3nsson%20%DAlfhildarson%20Snorri%20P%E1ll%20J%F3nsson%20%DAlfhildarson
- ↑ http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=286794&pageId=4194629&lang=is&q=Snorri%20P%E1ll%20J%F3nsson%20%DAlfhildarson
- ↑ http://www.visir.is/motmaeli-vid-karahnjuka/article/200660731007
- ↑ http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=285678&pageId=4166302&lang=is&q=Snorri%20P%E1ll
- ↑ http://www.althingi.is/lagas/nuna/1940019.html
- ↑ http://attac.is/greinar/%C3%A9g-%C3%A1k%C3%A6ri-ykkur-r%C3%A6%C3%B0a-s%C3%B3lveigar-j%C3%B3nsd%C3%B3ttur-%C3%A1-austurvelli-15-ma%C3%AD-2010[óvirkur tengill]
- ↑ http://www.mbl.is/frettir/forsida/2011/02/16/syknud_af_akaeru_fyrir_brot_gegn_althingi/
- ↑ http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/11/07/faer_skadabaetur_vegna_handtoku/