Snjókarlinn - Soffía og Anna Sigga
Útlit
Snjókarlinn | |
---|---|
Stjörnuhljómplata 3 | |
Flytjandi | Soffía Árnadóttir og Anna Sigga Þorgrímsdóttir, hljómsveit Árna Ísleifs |
Gefin út | 1960 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir Tónar |
Snjókarlinn er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum Tónum árið 1960 undir merkinu Stjörnuhljómplötur. Á henni syngja Soffía Árnadóttir og Anna Sigga Þorgrímsdóttir eða Soffía og Anna Sigga eins og þær voru kallaðar, tvö lög með hljómsveit Árna Ísleifs. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Komdu niður - Lag og texti: Jón Sigurðsson - ⓘ
- Snjókarlinn - Lag - texti: Árni Ísleifs - Númi Þorbergsson - ⓘ
Komdu niður
[breyta | breyta frumkóða]- Þegar ég var lítil var ég voða feimin oft
- og væri einhver ókunnugur skaust ég upp á loft.
- En ef að ég var úti, þegar gest að garði bar,
- ég geystist upp á hlöðuburst og settist niður þar.
- Komdu niður, kvað hún amma.
- Komdu niður, sögðu pabbi og mamma.
- :,: Komdu niður, komdu niður.
- Komdu niður, sungu öll í kór. :,:
- Svo stækkaði ég meira og þá varð ég voða kát
- og veslings pabba og mömmu oft ég setti hreint í mát.
- Ég blístraði og hentist yfir hvað sem fyrir var,
- ég hoppaði upp á skólaþak og settist niður þar.
- Komdu niður, kvað hún amma.
- Komdu niður, sögðu pabbi og mamma.
- :,: Komdu niður, komdu niður.
- Komdu niður, sungu öll í kór. :,:
- En seinna verð ég stærri og það verður gaman þá
- og víst er það að margt þið fáið þá til mín að sjá,
- þá ætla ég nú upp í tunglið strax að fá mér far
- að finna karlinn skrítna, sem að á víst heima þar.
- Komdu niður, kveður amma.
- Komdu niður, segja pabbi og mamma.
- :,: Komdu niður, komdu niður.
- Komdu niður, syngja öll í kór. :,:
Ljóð: Jón Sigurðsson