Snæfellsskáli
Snæfellsskáli stendur við norðanvert Snæfell, skálinn var reistur af Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs í ágúst 1970.
GPS staðsetning skálans er 64.48.250 N / 15.38.600 V[1]
Skálinn er staðsettur á við rætur Snæfells á vegi F909 sem nær alla leið inn að Brúarjökli[2]
Skálinn er í dag í eigu Vatnajökulsþjóðgarðs og er aðsetur landvarða. Þeir taka á móti gestum sem sækja svæðið heim og veita upplýsingar um svæðið yfir sumartímann.
Svefnpokagisting er í skálanum fyrir um 45 manns. Gistingin skiptist í tvö herbergi sem búin eru kojum (Söngstofu og Tókastofu) einnig er hægt að gista í flatsæng á loftinu fyrir ofan eldhúsið sem kallast Þokuloft. Skálinn er búinn eldhúsi og matsal sem að sem að tekur um 30 manns í sæti[1].
Skálinn er hitaður upp með olíueldavél á sumrin og er rennandi vatn í skálanum ásamt salernum og sturtum í þar til gerðu húsi suðaustan við hann. Á veturna er skálinn hitaður með timbur kamínu og er þurrsalerni við í salernishúsi fyrir vetrarferðamenn en ekkert rennandi vatn er á svæðinu yfir vetrar tímann[1].
Tjaldsvæði er staðsett rétt við Snæfellsskála.
Landverðir Vatnajökulsþjóðgarðs hafa aðsetur í Snæfellsskála yfir sumartímann og taka á móti gestum þar, þeir veita einnig upplýsingar um svæðið og ástand á gönguleiðum og slóðum[1].
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 Vatnajökulsþjóðgarður. „Snæfell / Lónsöræfi“. Vatnajökulsþjóðgarður. Sótt 4. apríl 2021.
- ↑ „Færð á Austurlandi“. Vegagerðin. Sótt 4. apríl 2021.