Skollakræða
Útlit
Skollakræða | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
|
Skollakræða (fræðiheiti: Alectoria ochroleuca) eða tröllagrös[1] er runnkennd, ljósgul, stór og áberandi flétta sem myndar oft samfelldar, gular breiður á hæðum og hólum. Hún er algeng á austanverðu og norðanverðu Íslandi og vex einkum inn til landsins á Norðausturlandi. Skollakræða setur svip á landslag í Mývatnssveit. Hún vex einnig á Álftanesi og nágrenni þess.
Þal skollakræðu er runnkennt og greinar uppréttar um 4–10 sm á hæð. Greinar eru hvítgular eða grængular og mattar. Skollakræðan vex á jarðvegi uppi á hæðum og utan í hæðarbrúnum. Skollakræða hefur einnig verið kölluð tröllagrös eða tröllakræða.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Skollakræða.
- Hörður Kristinsson, Krókar og kræður. – Náttúrufræðingurinn, 1. Tölublað (01.03.1996), p. 3-14
- Skollakræða (fræðiheiti Alectoria ochroleuca) Flóra Íslands
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Helgi Hallgrímsson. 2010. Sveppabókin. Skrudda, Reykjavík. ISBN 978-9979-655-71-8