Samband íslenskra samvinnufélaga
Samband íslenskra samvinnufélaga | |
Rekstrarform | Samvinnufélag |
---|---|
Stofnað | 20. febrúar 1902 |
Staðsetning | Egilsholti 1 310 Borgarnes |
Lykilpersónur | Guðsteinn Einarsson, stjórnarformaður |
Starfsemi | Rekstur eignarhaldsfélaga |
Samband íslenskra samvinnufélaga (SÍS), Sambandið eins og það er kallað í daglegu tali eða Samband eins og það var kallað erlendis var stofnað á Ysta-Felli Þingeyjasýslu 20. febrúar 1902 sem Sambandskaupfélag Þingeyinga en fékk síðan nafn sitt endanlega árið 1906.
SÍS var stofnað upphaflega til að vera samræmingaraðili íslenskra samvinnufélaga og þróaðist síðan yfir í samvinnuvettvang þeirra á sviði út- og innflutnings og til að ná hagstæðum samningum erlendis vegna þess taks sem danska kaupmannastéttin hafði enn á íslensku viðskiptalífi á þeim tíma.
Meðal annars rak SÍS skipadeild sem var stofnuð 1946 og sá um vöruflutninga í samkeppni við Eimskipafélag Íslands. Stuttu áður en annar samkeppnisaðili, Hafskip, varð gjaldþrota í lok árs 1985 stóð til að SÍS myndi kaupa fyrirtækið en á stjórnarfundi var kosið gegn því og munaði einu atkvæði.
Þegar leið á 20. öldina varð SÍS öflugasta viðskiptaveldi Íslands og með ítök á flestum sviðum viðskiptalífsins allt fram til ársins 1992 þegar starfsemi þess var orðin nánast engin vegna skulda þess við lánardrottna sína.
Forstjórar SÍS
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Nafn |
---|---|
1917-23 | Hallgrímur Kristinsson |
1923-46 | Sigurður Kristinsson |
1946-55 | Vilhjálmur Þór |
1955-86 | Erlendur Einarsson |
1986-93 | Guðjón B. Ólafsson |
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- „Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra“. Sótt desember 2008.
- Saga Sambandsins (Ris veldi og fall). Leikstjóri Viðar Víkingsson. 1999.