Fara í innihald

Samband íslenskra skólalúðrasveita

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Samband íslenskra skólalúðrasveitir (eða SÍSL) hefur frá upphafi staðið fyrir landsmótum og stuðlað að útgáfu á íslenskum útsetningum fyrir skólalúðrasveitir. Hátt í 40 sveitir tengdar tónlistarskólum, grunnskólum og öðrum skólum taka þátt í þessum verkefnum.

Forsögu SÍSL má rekja aftur til ársins 1969, þegar nokkrir stjórnendur skólalúðrasveita hófu samstarf. Var þetta gert fyrir frumkvæði frá Seltjarnarnesi en þar voru fyrstu mótin haldin, á hverju ári frá 1969 til 1974.

Helstu verkefni SÍSL hafa frá upphafi verið að standa fyrir landsmótum annað hvert ár og stuðla að útgáfu á íslenskum útsetningum fyrir skólalúðrasveitir.

Síðan 1998 hefur starfsemi Lúðrasveitar Æskunnar einnig verið fyrirferðamikill hluti starfsins. SÍSL hefur staðið fyrir því að fá til landsins erlenda stjórnendur til að stjórna LÆ og hafði einnig frumkvæði að fyrstu hljómsveitarkeppninni sem haldin var í Reykjanesbæ þann 1. júní síðastliðinn.

Árið 1999 gengu samtökin í NoMU, Nordisk Musik Union. NoMU hefur meðal annars styrkt Skólalúðrasveit Grafarvogs til Noregsfarar og liðsinnt við val á norskum stjórnanda fyrir Lúðrasveit Æskunnar.