Fara í innihald

Sólheimar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Sólheimar í Grímsnesi)
Yfirlitsmynd yfir Sólheima

Sólheimar er sjálfbært samfélag í Grímsnesi þar sem rúmlega 100 einstaklingar búa og starfa saman. Sólheimar voru stofnaðir árið 1930 af Sesselju Hreindís Sigmundsdóttur (1902 - 1974). Íbúar voru 111 árið 2015.

Byggðahverfið Sólheimar leggur áherslu á ræktun manns og náttúru. Rekin er félagsþjónusta á Sólheimum þar sem einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn er veitt tækifæri til atvinnu og starfsþjálfunar, búsetu, félags- og menningarstarfs.

Fjölbreytt starfsemi fer fram á Sólheimum svo sem rekstur skógræktar- og garðyrkjustöðva sem báðar stunda lífræna ræktun. Verslun og listhús, kaffihús og gistiheimili. Fjöldi listvinnustofa er á Sólheimum svo sem kertagerð, listasmiðja, keramik, vefstofa, jurtastofa og smíðastofa.

Í byggðahverfinu er kirkja, höggmyndagarður, trjásafn, hljómgarður, listsýningarsalur, umhverfissetrið Sesseljuhúsi auk íþróttaleikhúss.

  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.