Sídon
Útlit
Sídon (arabíska: صيدا Ṣaydā) er þriðja stærsta borg Líbanon. Borgin stendur á strönd Miðjarðarhafsins um 40 km norðan við Týros og tæpum 50 km sunnan við Beirút. Sídon var mikilvægust og hugsanlega elst borga Föníkumanna en síðar lögðu Grikkir og Rómverjar borgina undir sig. Íbúafjöldinn árið 2005 var um 163.554 .
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Sídon.