Fara í innihald

Reykjavík Geothermal

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Reykjavik Geothermal ehf.)
Hellisheiðarvirkjun. Margir af starfsmönnum RG unnu við uppbyggingu virkjunarinnar

Reykjavik Geothermal ehf. (RG) er íslenskt fyrirtæki sem vinnur að rannsóknum og þróun jarðhitasvæða, einkum háhitasvæða til raforkuframleiðslu í þróunarlöndum. Fyrirtækið veitir veitir einnig ráðgjafarþjónustu í jarðhitanýtingu.

Fyrirtækið var stofnað árið 2008 af einstaklingum úr íslenskum jarðhitageiranum sem hafa mikla reynslu af jarðhitavísindum, verkfræði, fjármögnun og stjórnun jarðhitanýtingar, sem og smíði jarðvarmavirkjana.

Hjá fyrirtækinu vinna um 30 manns. Velta félagsins er um hálfur milljarður kr. á ári. Fyrirtækið er í eigu stjórnenda RG og enskra og bandarískra fjárfesta. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi en RG rekur skrifstofur í New York í Bandaríkjunum, Addis Ababa í Eþíópíu, í Dúbæ, Sameinuðu Arabísku furstadæmunum