Rasphúsið
Útlit
Rasphúsið var alræmt fangelsi í Kaupmannahöfn. Þangað voru dæmdir Íslendingar iðulega sendir. Ýmis erfiðisvinna tíðkaðist í fangelsum framan af, meðal annars voru fangar látnir raspa niður tré til litunar. Því voru fangelsi á Norðurlöndum oft uppnefnd rasphús.
Orðið „rasphús“ er einnig notað sem Grýla á börn: „Ef þú gerir þetta aftur verður þú sendur í rasphúsið!“