Rannsóknarnefnd samgönguslysa
Rannsóknarnefnd samgönguslysa er ríkisstofnun sem sinnir rannsókn flugslysa, sjóslysa og umferðaslysa á Íslandi til að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð. Markmiðið er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Nefndin heyrir stjórnsýslulega undir Samgönguráðherra, en starfar sjálfstætt og óháð stjórnvöldum og öðrum rannsóknaraðilum, ákæruvaldi og dómstólum.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Með lögum um rannsókn samgönguslysa nr. 18/2013 var starfsemi Rannsóknarnefndar flugslysa, Rannsóknarnefndar sjóslysa og Rannsóknarnefndar umferðarslysa sameinuð undir Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Nefndirnar þrjár sameinaðar voru sameinaðar í eina sjö manna rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Rannsókn nefndarinnar miðar eingöngu að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð. Markmiðið er að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.
Hjá Rannsóknarnefndinni starfa 7 manns, það er 6 rannsakendur og einn móttökuritari. Höfuðstöðvar hennar eru í húsi Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur að Flugvallarvegi 7, í Reykjavík.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Vefur Rannsóknarnefndar samgönguslysa]
- Lög um rannsókn samgönguslysa nr. 18 2013
- Reglugerð um störf rannsóknarnefndar samgönguslysa nr. 763/2013
- Lög um köfun nr. 81 /2018.