Ranakollar
Útlit
Ranakollar | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ranakolli
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
dökk rauður: dreifing ættkvíslarinnar (Norðurey Nýja Sjálands)
|
Ranakollur er skriðdýrstegund sem er eingöngu til á Nýja Sjálandi. Hún tilheyrir ætt þar sem hún er eina núlifandi tegundin. Á miðlífsöld mátti finna tegundir ættarinnar bæði á landi og í sjó og voru þær bæði skordýraætur og jurtaætur.
Ranakollar hafa verið friðaðir síðan 1985. Þeir eru 60 cm löng næturdýr. Þeir halda virkni þótt líkamshiti þeirra fari allt niður í 6 °C en nota sólina til að hækka líkamshitann á daginn. Lifa einkum á hryggleysingjum og einstaka smáhryggdýrum. Hafa tvær tannraðir í efra gómi. Lifa í holum þá gjarnan gömlum sjófuglaholum.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Tuatara“. Department of Conservation, Wellington, New Zealand. Afrit af upprunalegu geymt þann 31. janúar 2011. Sótt 28 Júní 2009.