Port Moresby
Útlit
9°30′49″S 147°13′7″A / 9.51361°S 147.21861°A Port Moresby (eða Pot Mosbi á Tok Pisin) er höfuðborg og stærsta borg Papúa-Nýju Gíneu við Suðvestur-Kyrrahaf. Hún liggur við strendur suðausturhluta eyjunnar Nýju-Gíneu við Papúa flóa. Íbúar eru ríflega 307.643 manns (2009).
Fyrir landnám Evrópubúa bjuggu þar Motu og Koitabu menn, sjómenn og bændur sem versluðu við nálægar standbyggðir. Höfnin var könnuð árið 1873 af breska sjóðliðsforingjanum John Moresby, sem nefndi staðinn eftir föður sínum, Moresby. Landsvæðið varð síðan bresk nýlenda tíu árum síðar. Bærinn varð mikilvæg stöð fyrir Vesturveldin í seinni heimstyrjöldinni gegn Japönum.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Port Moresby.