Philippe de Vitry
Útlit
Philippe de Vitry (31. október 1291 – 9. júní 1361) var franskt tónskáld, tónfræðingur og ljóðskáld. Hann var einn helsti tónfræðingur Ars Nova tímabilsins og fann hann upp það heiti. Vitað er að hann var frá París og lærði mjög líklega við Parísarháskóla. Hann var við hirðir nokkurra Frakkakonunga og vann líka um tíma við andpáfahirðina í Avignon. Þar að auki varð hann biskup seint á ævinni. Vitry er oft talinn hafa þróað ísóryþma og var einnig mjög nýungagjarn í nótnaritun, einkum hvað varðar hryn.