Engjaskófir
Engjaskófir | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tegundir á Íslandi | ||||||||||||
Sjá texta. |
Engjaskófir (fræðiheiti: Peltigera) [1] eru ættkvísl fléttna af engjaskófarætt. Þær vaxa oftast á grónum jarðvegi og eru af formgerð blaðfléttna. Ættkvíslin er útbreidd um allan heim og inniheldur 66 tegundir. Lífefnafræði fléttnanna er lítt þekkt en þær gefa margar hverjar frá sér lífvirkar annars stigs efnaskiptaafurðir. Meðal nýlegra rannsókna sem stundaðar hafa verið á engjaskófa fléttum má nefna kennigreiningu ljósbýlinga fléttnanna, en innan ættkvíslarinnar er að finna tegundir sem nýta sér grænþörunga og blágerla til ljóstillífunar. Í ljós hefur komið að ljósbýlingar engjaskófa eru um margt frábrugðnir sömu bakteríu- eða þörungahópum sem lifa sjálfstæðu lífi utan fléttunnar [2]
Tegundir á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Listinn er byggður á skrá yfir fléttur á Íslandi frá árinu 2009 nema annað sé tekið fram.[3] Íslensk heiti eru frá Herði Kristinssyni.[1]
- Peltigera aphthosa - Flannaskóf
- Peltigera britannica - Bretaskóf
- Peltigera canina - Engjaskóf
- Peltigera collina - Klettaskóf
- Peltigera didactyla - Lambaskóf
- Peltigera extenuata - Gimbraskóf
- Peltigera hymenina - Hagaskóf
- Peltigera islandica[4][5] - Foldarskóf eða Íslandsskóf[heimild vantar]
- Peltigera kristinssonii - Dældaskóf
- Peltigera lepidophora - Hosuskóf
- Peltigera leucophlebia - Dílaskóf
- Peltigera lyngei -
- Peltigera malacea - Mattaskóf
- Peltigera membranacea - Himnuskóf
- Peltigera monticola -
- Peltigera neckeri - Blikskóf
- Peltigera polydactylon - Glitskóf
- Peltigera ponojensis -
- Peltigera praetextata - Giljaskóf
- Peltigera rufescens - Fjallaskóf
- Peltigera scabrosa - Þéluskóf
- Peltigera scabrosella -
- Peltigera venosa - Æðaskóf
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 Hörður Kristinsson (2016). Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag
- ↑ Martínez, Burgaz, Vitikainen og Escudero (2003) Distribution patterns in the genus Peltigera Willd. Geymt 6 mars 2016 í Wayback Machine Lichenologist 35: 301-323.
- ↑ Hörður Kristinsson & Starri Heiðmarsson (2009). Skrá yfir fléttur á Íslandi. Sótt af vefsvæði Flóru Íslands.
- ↑ Manoharan-Basil, S. S., Miadlikowska, J., Goward, T., Andrésson, Ó., S. og Miao, V. P. W. Peltigera islandica a new cyanolichen species in section (Peltigera canina group). The Lichenologist 48(5): 451-467
- ↑ Ósk U. U. Aniforo (2012). Cyanobacteria in lichens and mosses. Reykjavík: Háskólaprenti.