Næfurfura
Næfurfura | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Næfurfura við Jogyesa (Búddahof) í Seoul, Suður Kóreu
| ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Pinus bungeana Zucc. ex Endl. | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Næfurfura (fræðiheiti Pinus bungeana[4], kínverska: 白皮松 japanska: シロマツ, kóreska 백송, framburður: baeksong) er fura ættuð frá norðaustur- og miðhluta Kína.[5][6] Þetta er hægvaxta tré sem getur náð 15 til 25 m hæð og þolir að frost fari niður fyrir -26 °C. Af sléttum, grágrænum berkinum flagna smátt og smátt kringlóttar flögur sem skilja eftir sig fölgular eða hvítar skellur, sem verða síðar ólívubrúnar, rauðbrúnar eða purpuralitar þegar börkurinn í þeim verður fyrir birtu.
Litningatalan er 2n = 24.[7]
Útbreiðsla og búsvæði
[breyta | breyta frumkóða]Pinus bungeana er ættuð úr fjöllum Kína, en er ræktuð víða til skrauts, ekki síst vegna skrautlegs barkarins.[1] Hún er orðin ílend í Sierra de la Ventana í Austur-Argentínu.[heimild vantar]
Nytjar
[breyta | breyta frumkóða]Næfurfura er ræktuð til skrauts. Í Austurlöndum er hún táknræn fyrir langlífi og þar er henni því oft plantað við hof og í opinberum görðum. Á heimaslóðum er viðurinn nýttur og fræin étin.[8][9] Hún er einnig nokkuð víða í grasagörðum og er oft margstofna. Börkurinn er sérstaklega litfagur eftir rigningar.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 Bachman, S. (RBG Kew); Farjon, A. (RBG Kew); Gardner, M. (RBG Edinburgh); Thomas, P. (RBG Edinburgh); Luscombe, D. (Forestry Comm. Bedgebury) & Reynolds, C. (Forestry Comm. Bedgebury) (2007). „Pinus bungeana“. Rauði listi IUCN yfir tegundir í hættu. 2012.2. Sótt 2. júní 2013.
- ↑ World Checklist of Selected Plant Families. „Pinus bungeana“. Sótt 7 apríl 2013.[óvirkur tengill]
- ↑ „Pinus bungeana The PlantList“. Afrit af upprunalegu geymt þann 2. janúar 2016. Sótt 5. nóvember 2018.
- ↑ "Pinus bungeana". Natural Resources Conservation Service PLANTS Database. USDA. Retrieved 4 October 2015.
- ↑ Fu, Liguo; Li, Nan; Elias, Thomas S.; Mill, Robert R. "Pinus bungeana". Flora of China. 4. Retrieved 2018-08-16 – via eFloras.org, Missouri Botanical Garden, St. Louis, MO & Harvard University Herbaria, Cambridge, MA.
- ↑ Earle, Christopher J., ed. (2018). "Pinus bungeana". The Gymnosperm Database.
- ↑ Tropicos. [1]
- ↑ Aljos Farjon: A Handbook of the World's Conifers, Band 2, S. 644
- ↑ James E. Eckenwalder: Conifers of the World, S. 416
Viðbótarlesning
[breyta | breyta frumkóða]- Li, B. & W. C. Gu (2002). „A study on phenotypic diversity of seeds and cones characteristics in Pinus bungeana“. Biodiversity Science. 10 (2): 181–188.
- Sujuan, Guo; Ling Hongqin & Li Fenglan. „Physiological and biochemical basis of rooting of Pinus bungeana cuttings“. Journal of Beijing Forestry University. 2004 (2). Afrit af upprunalegu geymt þann 17. ágúst 2018. Sótt 5. nóvember 2018.