Notendastýrð persónuleg aðstoð
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er velferðarþjónusta til handa einstaklingum sem þurfa aðstoð vegna veikinda eða fötlunar. Aðstoðin skal vera skipulögð á forsendum þeirra sem nota þjónustuna og undir þeirra verkstýringu og verkstjórn. Ef fötlun eða veikindi notandans koma í veg fyrir að hann annist sjálfur verkstjórn skal hann eiga rétt á aðstoð við verkstjórnina. Þjónustan skal vera heildstæð og krefst samhæfingar af hálfu félags-, heilbrigðis-, og menntamála.
Notendastýrð persónuleg aðstoð er veitt á grundvelli samnings milli sveitarfélags og einstaklingsins sem notar þjónustuna.[1] Þjónustan byggir á hugmyndafræði um sjálfstætt líf (e. Independent living) og þau sem nota aðstoðina stýra sjálf fyrirkomulagi þjónustunnar og ákveða sjálf hver veitir aðstoðina og hvernig hún er skipulögð.[2] Aðstoðin getur verið veitt inn á heimili einstaklings, á vinnustað eða öðrum þeim vettvangi sem notandinn ákveður. Með notendastýrði persónulegri aðstoð minnkar þörfin á því að fatlaðir og eða langveikir einstaklingar dveljist á stofnunum.
NPA-miðstöðin er umsýsluaðili með samningum um notendastýrða persónulega aðstoð á Íslandi og hefur miðstöðin starfsleyfi frá félagsmálaráðuneytinu.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Heimasíða NPA-miðstöðvarinnar (skoðað 1. október 2019)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Stjornarradid.is, „Almennt um NPA“ (skoðað 1. október 2019)
- ↑ Reykjavik.is, „NPA“ (skoðað 1. október 2019)