Nordisk familjebok
Nordisk familjebok er sænsk alfræðiorðabók. Nafn hennar merkir norræn fjölskyldubók.
Fyrsta útgáfan kom út 1876-1899. Önnur útgáfan, hin svokallaða Ugluútgáfa, kom út 1904-1926 í 38 bindum og er enn í dag talin vera umfangsmesta alfræðiorðabók sem gefin hefur verið út á sænska tungu. Þriðja útgáfan var gefin út 1923-1937 og fjórða útgáfan 1951-1957.
Nordisk familjebok á netinu
[breyta | breyta frumkóða]Fyrsta og önnur útgáfa af Nordisk familjebok eru ekki lengur höfundarréttarvarðar og hafa verið skannaðar inn og gerðar aðgengilegar á internetinu af Projekt Runeberg.
Nordisk familjebok var vel úr garði gerð á sínum tíma þó að vitanlega sé margt í hundrað ára gömlu riti sem ekki lengur getur talist rétt. Vegna þess hve vandað var til útgáfunnar á sínum tíma hefur á sænsku wikipedia mjög verið stuðst við Nordisk familjebok í greinum sem fjalla um efni þar sem hún er enn viðeigandi.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- [1] - Fyrsta og önnur útgáfa