New Holland Ag
Útlit
New Holland er bandarískt fyrirtæki sem framleiðir landbúnaðar- og jarðvinnsluvélar. Það var stofnað í Pennsylvaníu árið 1895 og er í dag hluti af CNH Global.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]- Abe Zimmerman stofnaði fyrirtækið 1895 í New Holland-fylki í Pennsylvaníu.
- Árið 1947 sameinaðist það svo Sperry Corporation og kallast þá Sperry New Holland.
- Það keypti svo meirihluta í belgíska fyrirtækinu Claeys sem framleiddi þreskivélar, árið 1964.
- 1974 seldi Sperry New Holland hluta framleiðslunnar, sem hafði með garðsláttuvélar og fleira, til Ariens svo framleiðsla þeirra féll niður um hríð hjá Sperry New Holland.
- Árið 1986 kom Sperry New Holland í hlut Ford og tók upp nafið Ford New Holland.
- Öll samsteypan var seld til Fiat árið 1991. Þá varð til N.H. Geotech. Dráttarvélar sem seldar voru frá fyrirtækinu á árabilinu 1991 til 1993 voru í tveimur flokkum; þekktust á rauðbrúnum lit (Fiat New Holland) og bláum lit (Ford New Holland).
- 1991 keypti Ford New Holland Versatile Farm Equipment Company í Kanada.
- Tveimur árum síðar skipti N.H. Geotech svo um nafn; tók nú upp New Holland N.V.
- 1999: Fiat keypti Case IH, sameinaði það New Holland N.V. og skipti á ný um nafn; CNH Global N.V. Þó voru Case IH og New Holland-traktorar áfram seldir undir sér merkjum. Til að fulltryggja kaupin var Versatile selt til Buhler Industries í Winnipeg. Dráttavélaverksmiðjurnar í Doncaster á Englandi voru seldar ARGO og með því fór McCormick.
- Frá árinu 2000 hafa allar dráttarvélar verið bláar og bara merkið New Holland notað. Þreskivélarnar eru hins vegar gular og bláar en bindivélar rauðar og gular.
Þjónustu- og söluaðili fyrir New Holland landbúnaðartæki á Íslandi eru Kraftvélar ehf.
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]- Vefsíða New Holland Geymt 14 maí 2008 í Wayback Machine