Nýgráða
Útlit
Nýgráða er mælieining horna, sem er 1⁄400 úr heilum hring, þ.e.a.s. að í hverjum hring séu 400 nýgráður. Nýgráður komu til vegna tengsla við tugakerfið en eru samt lítið notaðar. Algengara er að notast við bogagráður, sem eru 1⁄360 af heilum hring.
Kostir
[breyta | breyta frumkóða]Hver fjórðungur hrings er 100 nýgráður, sem auðveldar bæði skilning og reikning.
0° | = | 0 nýgráður |
90° | = | 100 nýgráður |
180° | = | 200 nýgráður |
270° | = | 300 nýgráður |
360° | = | 400 nýgráður |