Núningskraftur
Útlit
(Endurbeint frá Núningur)
Núningskraftur eða núningur er kraftur sem spornar gegn hreyfingu. Vinna núningskrafts myndar varma og veldur því að hlutur á ferð stöðvast að lokum. Núningsstuðull er hlutfall núningskrafts og þverkrafts.
Flokkast í eftirfarandi:
- Stöðunúningur: Stærð núningskrafts hlutar, rétt áður en hann skríður af stað.
- Renninúningur: Þegar tveir fastir hlutir renna hvor yfir annan, háður massa og áferð (hrýfi).
- Veltinúningur: Hlutur veltir eftir fleti, án þess að renna á honum.
- Straummótsstaða: Mótstaða hluta við streymi kvikefnis, t.d. loftmótstaða bíls og straummótstaða í pípu.