Mælifell (Skagafirði)
Útlit
Mælifell er bær, kirkjustaður og áður prestssetur framan til í Skagafirði vestanverðum. Bærinn stendur undir Mælifellshnjúk, einu þekktasta og mest áberandi fjalli Skagafjarðar. Vestan við hnjúkinn er Mælifellsdalur og þar um lá áður fjölfarin leið milli Norður- og Suðurlands, inn á Kjalveg og Stórasand.
Á meðal þekktustu presta sem þjónuðu Mælifellssókn má nefna Arngrím Jónsson lærða. Nú er á Mælifelli lítil steinkirkja, sem vígð var 1925.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Hallgrímur Jónasson: Árbók Ferðafélags Íslands. Skagafjörður. Ferðafélag Íslands, 1946.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Mælifellskirkja á kirkjukort.net Geymt 6 mars 2016 í Wayback Machine