Skógmunablóm
Útlit
(Endurbeint frá Myosotis sylvatica)
Skógmunablóm | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||
Myosotis sylvatica Ehrh. ex Hoffm. |
Skógmunablóm eða garðmunablóm[1] (fræðiheiti: Myosotis sylvatica[2]) er fjölært blóm af munablómaætt. Það er ættað frá Suður og Mið-Evrópu austur til Nepal. Skógmunablóm verður um 12 - 30 sm hátt. Blóm þess eru skærblá til djúpblá og 6 til 10 mm í þvermál. Því svipar nokkuð til bergmunablóms, en er hærra og með lengri blómstilka.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Akureyrarbær. „Garðaflóra“. Lystigarður Akureyrar. Sótt 1. apríl 2024.
- ↑ Roskov Y., Kunze T., Orrell T., Abucay L., Paglinawan L., Culham A., Bailly N., Kirk P., Bourgoin T., Baillargeon G., Decock W., De Wever A., Didžiulis V. (ed) (2019). „Species 2000 & ITIS Catalogue of Life: 2019 Annual Checklist“. Species 2000: Naturalis, Leiden, the Netherlands. ISSN 2405-884X. TaxonID: 53596097. Afrit af upprunalegu geymt þann 31. mars 2024. Sótt 31. mars 2024.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Skógmunablóm.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Myosotis sylvatica.