Fara í innihald

Litla hafmeyjan

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Myndskreyting eftir Edmund Dulac.

„Litla hafmeyjan“ (danska: Den lille havfrue) er ævintýri eftir danska rithöfundinn H.C. Andersen. Sagan birtist fyrst, ásamt sögunni um „Nýju fötin keisarans“ í safninu Eventyr, fortalt for Børn sem kom út í Kaupmannahöfn árið 1837. Sagan segir frá ungri hafmeyju sem fórnar lífi sínu í sjónum til að öðlast ódauðlega sál.

Sagan fjallar um hafmeyjuprinsessu sem verður ástfangin af mennskum prinsi. Þegar skip hans ferst í stormi, bjargar hún honum frá drukknun. Önnur stúlka kemur að honum á ströndinni og hann heldur að sú hafi bjargað honum. Hafmeyjan kemst að því að menn hafi ódauðlega sál, en haffólkið lifir að jafnaði um 300 ár og leysist svo upp í sjávarlöður. Hún fer til sænornarinnar og biður hana um lyf til að verða að manneskju. Eftir það verður hún vinkona prinsins, en hann vill ekki giftast neinni nema stúlkunni sem hann heldur að hafi bjargað sér. Hún reynist vera prinsessa úr nágrannaríki og þau ganga í hjónaband. Þá brestur hjarta hafmeyjunnar, hún stekkur út í sjó og leysist upp, en í stað þess að deyja breytist hún í loftanda og fær tækifæri til að vinna góðverk og hljóta ódauðlega sál að launum.

Sagan er eitt af þekktustu ævintýrum Andersens, en hún hlaut gagnrýni í upphafi vegna endisins. Sagan endar vel, þótt hún sé harmræn, sem er í samræmi við trúarlegan boðskap hennar.[1] Vinnuheiti sögunnar var „Dætur loftsins“ sem sýnir að Andersen hafði endinn í huga allan tímann.[2][3] Andersen fékk innblástur frá nóvellunni Undínu eftir þýska rithöfundinn Friedrich de la Motte Fouqué sem kom út 20 árum fyrr.[4] „Litla hafmeyjan“ hefur verið kvikmynduð og gerð að teiknimyndum, meðal annars með samnefndri teiknimynd frá Disney 1989. Í Kaupmannahöfn er fræg hafmeyjustytta við Langelinie gerð af Edvard Eriksen og afhjúpuð árið 1913.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Massengale, James (1999). „The Miracle and A Miracle in the Life of a Mermaid“. Hans Christian Andersen. A Poet in Time. Papers from the Second International Hans Christian Andersen Conference 29 July to 2 August 1996.
  2. ↑ „Annotations for Little Mermaid“. SurLaLune Fairy Tales. Afrit af uppruna á 1 júlí 2014.
  3. ↑ Altmann, Anna E.; DeVos, Gail (2001). Tales, Then and Now: More Folktales As Literary Fictions for Young Adults. Libraries Unlimited. bls. 179. ISBN 1-56308-831-2.
  4. ↑ Brandy N. Clark (2019). The Originality and Commonalities in Mermaid Transformation Tales: Fouqué’s Undine, Andersen’s “the Little Mermaid,” Disney’s the Little Mermaid, and Miyazaki’s Ponyo (MA thesis). Texas State University.
  Þessi bókmenntagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.