Meginland
Útlit
(Endurbeint frá Landflæmi)
Meginland er hugtak sem er venjulega notað um stórt landsvæði sem myndar andstæðu við eyjarnar í kring. Þannig er talað um „meginland Evrópu“ sem andstæðu við eyjarnar í Norður-Atlantshafi (Bretlandseyjar, Færeyjar og Ísland), en líka „meginlandið“ á Íslandi sem andstæðu við t.d. Vestmannaeyjar og „meginlandið“ Bretland sem andstæðu við Ermarsundseyjar. Hvað telst meginland fer því eftir samhenginu hverju sinni.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]„Af hverju er Ástralía meginland en Grænland eyja?“. Vísindavefurinn.