Fara í innihald

Laó Tse

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mynd af Laó Tse eftir Zhang Lu.

Laó Tse, Laozi, Laó-tse, Laótse eða Laó Tzu (kínverska: 老子) var mikilvægur kínverskur heimspekingur. Nafn hans merkir „gamli meistarinn“ en gæti einnig þýtt „gamla barnið“ sem vísar jafnt til visku hins aldna sem aðlögunarhæfni og sveigjanleika hins unga. Til eru ýmsar frásagnir af Laozi og samkvæmt kínverskri hefð var hann uppi á 6. öld f.Kr. Honum er eignuð Bókin um veginn og dygðina (Dao de jing 道德经) sem er grunnrit í daóisma.[1] Ritið er talið hafa verið sett saman á 4. öld f.Kr. á tímabili hinna stríðandi ríkja.

Deilt er um hvort Laó Tse hafi í raun verið til eða hvort hann sé goðsagnapersóna sem var gerð að höfundi verka sem í raun voru tekin saman af fjölda taóískra spekinga.[2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Haukur Már Helgason (11. ágúst 2000). „Hver var Lao Tse og hvað gerði hann?“. Vísindavefurinn. Sótt 15. september 2026.
  2. ↑ Geir Sigurðsson (12. maí 2011). „Hver var Lao Tse og var hann í raun og veru til?“. Vísindavefurinn. Sótt 15. september 2026.
  Þessi heimspekigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.