Kristján Jónsson fjallaskáld
Útlit
(Endurbeint frá Kristján Jónsson Fjallaskáld)
Kristján Jónsson (20. júní 1842 – 9. apríl 1869), kallaður fjallaskáld að auknefni, er íslenskt ljóðskáld. Hann fæddist í Krossdal í Kelduhverfi og ólst upp í þeirri sveit og í Öxarfirði. Á árunum 1859-1863 var hann vinnumaður á Hólsfjöllum. Fór hann þá að birta kvæði eftir sig í blöðum, meðal annars Dettifoss, og var þá farið að kalla hann fjallaskáld. Kristján fór í Lærða skólann í Reykjavík 1864 en sagði sig úr honum 1868 og gerðist barnakennari á Vopnafirði þar sem hann dó árið eftir, aðeins tuttugu og sjö ára að aldri. Hann var jarðsunginn í Hofskirkjugarði í Vopnafirði. Bölmóður og vonleysi einkennir mörg ljóða Kristjáns eins og reyndar var algengt í ljóðum margra síðrómantískra skálda.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Sýnisbók íslenskra bókmennta frá 1550 til 1900, Kristján Eiríksson tók saman, Reykjavík 2003.
Á Wikiheimild er að finna texta sem tengist