Kirkjukór Akureyrar - Oss berast helgir hljómar
Útlit
Oss berast helgir hljómar | |
---|---|
SG - 017 | |
Flytjandi | Kirkjukór Akureyrar |
Gefin út | 1968 |
Stefna | Sálmasöngur |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Stjórn | Pétur Steingrímsson |
Oss berast helgir hljómar er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1968. Á henni flytur Kirkjukór Akureyrar jólalög. Stjórnandi er Jakob Tryggvason, organleikari Haukur Guðlaugsson. Hljóðritun fór fram í Mattíasarkirkju, Akureyri undir stjórn Péturs Steingrímssonar. Þrír Akureyringar eiga heiðurinn af útliti plötuumslagsins, þeir Kristján Kristjánsson, sem teiknaði það, Eðvarð Sigurgeirsson, sem tók ljósmyndina af kirkjunni og Matthías Gestsson, sem tók myndina af kórnum.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Oss berast helgir hljómar - Lag - texti: Tryggvi Kristinsson — Freysteinn Gunnarsson
- Ave Maria - Lag - texti: Jacques Arcadelt — Latneskur texti
- Slá þú hjartans hörpustrengi - Lag - texti: Johann Sebastian Bach — Valdimar Briem
- Leið mig Guð - Lag - texti: Samuel Sebastian Wesley — Texti úr Davíðssálmum
- Ó, jesúbarn blítt - Lag - texti: Johann Sebastian Bach — Jakob Jóhann Smári
- Lofsöngur - Lag - texti: Sigfús Einarsson — Biblíutexti
- Syng guði dýrð - Lag - texti: Björgvin Guðmundsson — Tómas Guðmundsson
- Í gegnum lífsins æðar allar - Lag - texti: L. Nielsen — Matthías Jochumsson
- Lofsöngur - Lag - texti: Helgi Helgason — 150. Davíðssálmur
- Liberia me (Einsöngur, Sigurður Svanbergsson) - Lag - texti: Gabriel Faure — Latneskur texti
- Ég kveiki á kertum mínum - Lag - texti: Páll Ísólfsson — Davíð Stefánsson ⓘ
- Dýrð í hæstu hæðum - Lag - texti: Björgvin Guðmundsson — Friðrik Friðriksson
- Ó, faðir Guð við þökkum þér - Lag - texti: Ludwig V. Beethoven — Sigurbjörn Einarsson
- Rís upp drottni dýrð - Lag - texti: Gamalt ísl. tvísöngslag. Kórraddsetn.: Jakob Tryggvason
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Þetta er fyrsta sálmasöngplatan af þessari stærð, sem út kemur hér á landi. Allir, sem viðriðnir eru útgáfu plötunnar hafa lagst á eitt um að vanda eins vel til hennar og framast hefur verið kostur. Frú Fríða Sæmundsdóttir, formaður Kirkjukórs Akureyrar átti hugmynd að útgáfunni og hélt kórnum við efnið eftir að samið hafði verið um útgáfu plötunnar. Jakob Tryggvason, hinn kunni tónlistarmaður á Akureyri, hefur stjómað kórnum um árabil og gerir á þessari hljómplötu. Í meirihluta laganna er leikið undir á hið tónfagra orgel Matthíasarkirkju og er þar að verki hinn landskunni organleikari Haukur Guðlaugsson. | ||