Kirkja hins fljúgandi spagettískrímslis
Útlit
Kirkja hins fljúgandi spagettískrímslis (enska: Flying Spaghetti Monsterism; skammstöfun: FSM) eru gervitrúarbrögð sem ætluð eru sem háðsádeila á hugmyndir sköpunarsinna og vitshönnunarsinna um upphaf lífs og þróun þess. Trúin er aðallega runnin undan rifjum eðlisfræðingsins Bobby Henderson.
Áhangendur þessarar trúar kallast pastafarar (vísun í rastafara). Pastafarar trúa því að fljúgandi spagettískrímslið (enska: The Flying Spaghetti Monster), einnig kallað Hinn heilagi núðluleiki, hafi í upphafi skapað tré, fjöll og dverg. Fljúgandi spagettískrímslið lét einnig viljandi líta út fyrir að lífið á jörðinni hafi þróast, en það gerði það í raun ekki.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Tengill
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Kirkju hins fljúgandi spagettískrímslis.