Kóp Bois Entertainment
Útlit
Kóp Bois Entertainment (KBE) er útgáfufyrirtæki stofnað af Herra Hnetusmjöri, titillinn vísar til þess að hann og ýmsir samstarfsmenn hans séu úr Kópavogi. Nafnið KBE fær innblástur frá útgáfufyrirtækinu Glory Boyz Entertainment (GBE) sem var meðal annars stofnað af rapparanum Chief Keef. Kóp Bois Entertainment gefur út efni Herra Hnetusmjörs, Þormóðs Eiríkssonar, Hugins og fleiri. Skemtistaðurinn 203 er einnig undir KBE.