Fara í innihald

Kælan Mikla

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kælan Mikla á Roadburn í Tilburg, Hollandi 2018.
Kælan Mikla í Madríd 2019.

Kælan Mikla er íslensk indie-rokk, synthpunk, darkwave og postpunk hljómsveit sem stofnuð var árið 2013 af Laufeyju Soffíu, Margréti Rósu Dóru-Harrysdóttur og Sólveigu Matthildi Kristjánsdóttur. Þær kynntust í MH og tóku þátt í ljóðaslammi Borgarbókasafnsins sem leiddi til stofnun Kælunnar Miklu. [1] Hljómsveitin sækir innblástur í íslenskar þjóðsögur, þjóðlög, drunga og fantasíur.

Sveitin hefur spilað á hátíðum í Evrópu og Bandaríkjunum og hitað upp fyrir Robert Smith í The Cure, Pixies, Placebo og frönsku post-metal sveitina Alcest.

  • Kælan Mikla (2016)
  • Mánadans (2017)
  • Nótt eftir nótt (2018)
  • Undir köldum norðurljósum (2021)

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Kælan Mikla - Undir köldum norðurljósum Rúv, sótt 24/1 2022