Iðnsýningin 1911
Útlit
Iðnsýningin 1911 var haldin í Miðbæjarskólanum í Reykjavík og var opnuð 17. júní 1911. Sama dag og Háskóli Íslands var stofnaður, á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar. Frumkvæði að því að halda sýninguna kom frá Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur. Áður hafði Iðnsýningin 1883 verið haldin. Á sýningunni 1911 voru um 1.500 munir. Mestu athyglina vöktu beinstóll Stefáns Eiríkssonar og „galdralæsingin“ hans Magnúsar Þórarinssonar á Halldórsstöðum. Munirnir voru tryggðir fyrir 65 þúsund krónur og dýrasti gripurinn, gullbelti, var metinn á sex þúsund krónur.
Vörur frá Klæðaverksmiðjunni Iðunni unnu fyrstu verðlaun á iðnsýningunni.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Raddir almennings - Iðnsýningin Vísir 21. júní 1911
- Iðnaðarmannafjelagið í Reykjavík 1867-1927, grein í Tímariti iðnaðarmanna 1927
- Dagskrá 17. júní 1911, í Vísi 17. júní 1911
- Iðnsýning í Reykjavík 1911, auglýsing í blaðinu Ísafold í janúar 1911
- Iðnkynning, í Lesbók Morgunblaðsins 1977
- Að sýningarlokum, Morgunblaðið 1952
- Iðnsýningin í Reykjavík 17. júní 1911[óvirkur tengill], frétt af vef Borgarskjalasafns Reykjavíkur