Hellisfjörður
Útlit
65°07′00″N 13°40′00″V / 65.11667°N 13.66667°V
Hellisfjörður er fjörður á Austfjörðum. Hann gengur inn úr Norðfjarðarflóa. Fyrir norðan í sama flóa er Norðfjörður (þar er bærinn Neskaupstaður), og fyrir sunnan er Viðfjörður.
Frá 1901-1913 var norsk hvalveiðistöð rekin utarlega í firðinum. Fjörðurinn hefur verið í eyði frá 1952.[1]
Jörðin Hellisfjörður tekur yfir mestan fjörðin. Þá jörð keypti Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi árið 2000. Þegar Sigurjón seldi 2019 jörðina til Þjóðverjans Sven Jakobi nýtti ríkið forkaupsrétt og keypti jörðina á 40 milljónir.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Gunnar Gunnarsson (19. júlí 2018). „Mikill áhugi á Hellisfirði“. Austurfrétt.