Heimferð íslensku jólasveinanna
Útlit
(Endurbeint frá Heimferð Íslensku jólasveinanna)
Heimferð íslensku jólasveinanna hefst eftir aðfangadag, samkvæmt ljóðinu „Jólasveinarnir“ í bókinni Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum. Samkvæmt þeirri hefð sem ljóðið um jólasveinana þrettán byggist á, þá koma þeir til manna frá 12. desember og sá seinasti kemur á aðfangadag, 24. desember.
Í kvæðinu lýsir Jóhannes úr Kötlum heimferð jólasveinanna á þennan hátt:
- Á sjálfa jólanóttina,
- -sagan hermir frá,-
- á strák sínum þeir sátu
- og störðu ljósin á.
- Svo tíndust þeir í burtu,
- -það tók þá frost og snjór.
- Á þrettándanum síðasti
- sveinstaulinn fór.
- Fyrir löngu á fjöllunum
- er fennt í þeirra slóð.
- -En minningarnar breytast,
- í myndir og ljóð.
Má af þessu ætla að á jóladag hafi fyrsti jólasveinninn, Stekkjastaur, lagt af stað aftur á fjöll. Svo einn af öðrum, uns sá síðasti, Kertasníkir, hverfur á braut á þrettándanum.