Golfklúbbur Vestmannaeyja
Golfklúbbur Vestmannaeyja | |
Fullt nafn | Golfklúbbur Vestmannaeyja |
Stytt nafn | GV |
---|---|
Stofnað | 4. des 1938 |
Völlur | Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum |
Holur | 18. |
Formaður | Helgi Bragason |
Sveitarfélag | Vestmannaeyjabær |
Héraðslið | ÍBV |
Virkar deildir ÍBV-Íþróttafélags | ||
---|---|---|
Knattspyrna |
Handknattleikur | |
Önnur ÍBV félög | ||
Körfubolti |
Sund |
Frjálsar |
Blak | ||
Aðildarfélög undir öðrum merkjum | ||
Golf |
Fimleikar |
Badminton |
Boccia |
KFS |
Golfklúbbur Vestmannaeyja stofnaður 4. desember 1938 heldur úti 18 holu völl í Vestmannaeyjum.
GV er þriðji elsti golfklúbburinn á landinu. GR er elstur (1934) og GA næstelstur (1935).
Sagan
[breyta | breyta frumkóða]Tildrög þess að hafið var að leika golf í Vestmannaeyjum má rekja til þess er Magnús Magnússon, skipstjóri frá Boston, USA, var á ferð í Eyjum sumarið 1937. Þá hafði hann kennt nokkrum mönnum undirstöðuatriðin í golfíþróttinni og reglur leiksins. Í framhaldinu ákváðu nokkrir af þeim, sem fallið höfðu fyrir íþróttinni, þeir Þórhallur Gunnlaugsson, Axel Halldórsson, Ólafur Halldórsson, Einar Guttormsson, Ágúst Bjarnason og Georg Gíslason, ásamt fleirum að boða til stofnfundar Golfklúbbs Vestmannaeyja.
Fundurinn var haldinn þann 4. des 1938 og voru 20 mættir. Í bráðabirgðastjórn og laganefnd voru kosnir Þórhallur Gunnlaugsson, formaður, Georg Gíslason, ritari og Ólafur Halldórsson, gjaldkeri. Framhaldsstofnfundur var haldinn 11. desember og voru þessir sömu menn kosnir í fyrstu stjórnina ásamt meðstjórnendunum Einari Guttormssyni og Viggó Björnssyni[1]
Formenn Golfklúbbs Vestmannaeyja
[breyta | breyta frumkóða]
|
|