Fara í innihald

Gilitrutt

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Gilitrutt er ævintýri um lata bóndakonu og konu í hennar þjónustu sem spinnur fyrir hana ull og vefur í vaðmál. Spunakonan vill láta vaðmálið af hendi ef bóndakonan kemst að nafni hennar. Bóndinn kemst að nafni spunakonunnar þegar hann gengur fram hjá grjóthól og heyrir högg þegar vefur er sleginn í hólnum og sá sem slær vefinn syngur „Hæ, hæ, og hó, hó. Húsfreyja veit ei, hvað ég heiti; hæ, hæ, og hó, hó. Gilitrutt heiti ég, hó, hó. Gilitrutt heiti ég, hæ, hæ, og hó, hó.“ .

Svipuð ævintýri eru í ævintýrasafni Grimmsbræðra og taka á sig blæbrigði eftir löndum og umhverfi og búskaparháttum. Sögunni um Rumputuska í safni Grimmsbræðra svipar mjög til sögunnar um Gilitrutt.