Furstinn
Útlit
Höfundur | Niccolò Machiavelli |
---|---|
Upprunalegur titill | Il Principe |
Þýðandi | Ásgrímur Albertsson (1987) |
Tungumál | Ítalska |
Útgefandi | Antonio Blado d'Asola |
Útgáfudagur | 1532 |
ISBN | ISBN 9979317019 |
Furstinn (í. Il Principe) er þekktasta rit Niccolòs Machiavelli (1469 - 1527) sem var embættismaður frá Flórens. Niccolò skrifaði bókina árið 1513 en hún kom fyrst út árið 1532. Bókin er leiðarvísir handa furstum um hvernig halda skuli völdum og auka þau, hvaða brögðum beri að beita og hvaða sögulega lærdóma sé hægt að draga. Um leið sýnir hún einkar vel hugsunarhátt og aðferðir valdhafa gegnum aldirnar, enda er hún eitt frægasta stjórnmálarit allra tíma.
Á mörgum tungumálum er það orðið niðrandi lýsingarorð að segja einhvern vera machiavellískan og er þá átt við að viðkomandi sé snauður tilfinningum, og jafnvel siðferði og hugsi einvörðungu um eiginhagsmuni.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Henry Alexander Henrysson (5. nóvember 2012). „Hver var Niccolò Machiavelli?“. Vísindavefurinn. Sótt 24. október 2024.