Frumdýr
Útlit
Frumdýr eru einfruma lífverur sem líkjast dýrum að lifnaðarháttum, eru ófrumbjarga og geta flest hreyft sig úr stað.
Frumdýr skiptast í:
- Slímdýr: frumuhimna myndar útskot sem dýrið notar til að fanga bráð, gleypa fæðuagnir og hreyfa sig. Undir slímdýr flokkast til dæmis amöbur.
- Bifdýr: eru með bifhár sem eru notuð til hreyfingar, skynfæri og fæðuöflun.
- Svipudýr: með svipur til að hreyfa sig. Lifa í samlífi í líkömum stærri dýra. Getur verið bæði til góðs, svo sem í termítum, og til ills, svo sem svefnsýki í mönnum.
- Gródýr: eru öll sníklar. Mynda gró sem flyst úr einum hýsli yfir í annan. Gródýr eru háð vatni. Þau lifa í sjó, ferskvatni og jarðvegi.