Fljúgandi furðuhlutur
Útlit
(Endurbeint frá FFH)
Fljúgandi furðuhlutur (skammst. FFH) eða fljúgandi diskur er óútskýranlegt fyrirbæri, sem sést á sveimi á himninum eða á ratsjá. Fljúgandi furðuhlutir, oft disklaga, koma fyrir í vísindaskáldskap og eru þá yfirleitt farartæki vitsmunavera frá öðrum hnöttum.
Engar sannanir eru til fyrir því að fljúgandi furðuhlutir séu einhverskonar farartæki eða hlutir sem ekki sé hægt að skýra út með eðlilegum hætti.
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Fljúgandi furðuhlutur.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist fljúgandi furðuhlutum.