Ekwendeni
Útlit
Ekwendeni er bær í Malaví, um 20 km frá Mzuzu, í héraðinu Mzimba. Bærinn var stofnaður af skoskum trúboðum og þar er ein elsta kirkja landsins. Hún tilheyrir skosku þjóðkirkjunni.
Bærinn er miðpunktur umferðar, bæði innan Malaví og á milli Kenýu og Tansaníu. Í nágrenni Ekwendeni er mikil tóbaksframleiðsla.
Í bænum er rekið sjúkrahús sem er fjármagnað af Bandaríkjamönnum og Skotum. Tumbuku-tungumál er algengt í bænum en einnig önnur tungumál vegna þess að hann liggur í alfaraleið.