Ekkekrates
Útlit
Ekkekrates var samkvæmt Platoni pýþagórískur heimspekingur frá gríska bænum Flíos. Hann kemur fyrir í samræðu Platons Fædoni. Hann hittir fyrir Fædon, sem samræðan heitir eftir, einhvern tímann eftir aftöku Sókratesar og biður Fædon um að segja sér söguna af síðustu stundum hins fræga heimspekings. Megnið af samræðunni fer svo í upprifjun Fædons á sögunni en Ekkekrates grípur inn í af og til og spyr spurninga um samræðurnar sem eru endursagðar.
Lítið er vitað um Ekkekrates annað en það sem kemur fram hjá Platoni. Það eina sem verður vitað um heimspekilegar skoðanir hans er að hann var pýþagóringur sem þekkti til Sókratesar og bar mikla virðingu fyrir honum.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Echecrates“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. mars 2006.