Fara í innihald

EJS

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
EJS ehf.
Rekstrarform Upplýsingafyrirtæki
Slagorð Það er til lausn á öllu
Stofnað 1939
Staðsetning Grensásvegi 10
Reykjavík
Ísland
Lykilpersónur Bjarni Birgisson, stjórnarformaður EJS hf.
Starfsemi Upplýsingatækni
Vefsíða Heimasíða EJS ehf.

Fyrirtækið EJS ehf. (áður Einar J. Skúlason) var umboðsaðili Dell á Íslandi. EJS ehf. var stofnað af Einari J. Skúlasyni árið 1939 en fyrirtækið einbeitti sér að nútíma upplýsinga- og samskiptatækni. EJS er nú hluti af Advania.[1]

Starfsemin hófst með rekstri á skrifvélaverkstæði sem síðar varð að verslun og innflutnings- og þjónustufyrirtæki fyrir skrifstofuvélar. Fljótlega bættist einnig við sala á búðarkössum.

Í byrjun níunda áratugarins hóf fyrirtækið að þreifa fyrir sér í tölvumálum. Helstu bankastofnanir landsins gerðu við það langtímasamning um beinlínutengingu og heildartölvuvæðingu á afgreiðslukerfum. Í kjölfarið, árið 1984, var fyrirtækið gert að hlutafélagi. Skömmu síðar seldi Einar, stofnandi þess, nokkrum starfsmönnum hlut sinn og hætti alfarið afskiptum af fyrirtækinu fyrir aldurs sakir. Einar er nú látinn.

  • „Um EJS“. Sótt 14. apríl 2007.
  1. „Sameinast undir heitinu Advania“. www.mbl.is. Sótt 16. september 2020.

Heimasíða EJS hf.