Dujiangyan áveitukerfið
Dujiangyan áveitukerfið (kínverska: 都江堰; rómönskun: Dūjiāngyàn) er fornt áveitukerfi í Dujiangyan borg, í Sesúan héraði í vesturhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Það var upphaflega sett upp á tímum Qin-veldisins á þriðju öld f.Kr. sem áveitu- og flóðvarnaverkefni og er það enn í notkun í dag.
Innviðir þessa forna og farsæla áveitukerfis hafa þróast við efri hluta Min fljóts (Minjiang) lengstu þverár Jangtse fljóts. Svæðið er á milli Sesúan vatnasvæðisins og Tíbet-hásléttunnar, í vesturhluta hinnar frjósömu Chengdu sléttu sem kölluð hefur verið „Himnaríki“ og „Land gnægta“.
Áveitukerfið beinir helmingi Min fljótsins um þétt net áveituskurða austur til að vökva sléttuna. Áveitukerfið er enn í grundvallaratriðum í upprunalegri mynd og gerir svæðinu kleift að styðja við matvælaframleiðslu á einu þéttbýlasta stað jarðar.
Áveitukerfið var, ásamt nálægum Qingcheng fjöllum miðstöðvar daoisma, útnefnd árið 2000 á Heimsminjaskrá UNESCO.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Dujiangyan“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 21. janúar 2021.