Dictionary of the Scots Language
Dictionary of the Scots Language – (skammstafað DSL) – (skoska: Dictionar o the Scots Leid) – er skosk-ensk orðabók í netútgáfu, í umsjón Scottish Language Dictionaries Ltd. Orðabókin er aðgengileg á netinu án endurgjalds, og hefur að geyma tvær stærstu orðabækur um skoska tungu:
- Dictionary of the Older Scottish Tongue (DOST), í 12 bindum, um fornskosku og miðskosku, frá 12. öld fram til 1700.
- Scottish National Dictionary (SND), í 10 bindum, um seinni tíma skosku, frá 1700 fram yfir 1970.
Samanlagt hafa þessi 22 bindi að geyma fyllstu upplýsingar sem til eru um sögu skoskrar tungu. Auk orðasafnsins hafa bókaskrár, eða skrár um orðtekin rit, verið gerðar aðgengilegar á netinu.
Árið 2005 var bætt við gagnagrunninn nýjum viðauka, sem var unninn á vegum Scottish Language Dictionaries Ltd.
Undirbúningur netútgáfunnar var verkefni á vegum Háskólans í Dundee, frá febrúar 2001 fram í janúar 2004, með fjárstuðningi Scottish Executive, Arts and Humanities Research Board, Scottish Language Dictionaries Ltd, Russell Trust og Carnegie Trust for the Universities of Scotland. Verkefnisstjóri var Victor Skretkowicz og ritstjóri Susan Rennie.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]- Scottish Language Dictionaries Ltd
- Scottish National Dictionary
- Dictionary of the Older Scottish Tongue
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Dictionary of the Scots Language — Netútgáfa
- Scottish Language Dictionaries Ltd Geymt 14 janúar 2013 í Wayback Machine — Vefsíða félags sem gefur út og endurskoðar skoskar orðabækur.